6 Janúar 2014 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni á föstudag. Lagt var hald á um 650 grömm af tilbúnum kannabisefnum, auk kannabisplantna og búnaðar tengdan starfseminni. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu. Við aðgerðina naut lögreglan aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.