28 Júní 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Hafnarfirði á föstudag. Um var að ræða bæði kókaín og marijúna. Á sama stað var einnig lagt hald á um 100 steratöflur og 1.150 millilítra af sterum í vökvaformi. Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.