18 Janúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í Kópavogi í gærkvöld. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og viðurkenndi hann að fíkniefnin, marijúana og kókaín, hefðu verið ætluð til sölu. Þá tók lögregla líka í sína vörslu töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.