2 Febrúar 2011 12:00

Fíkniefni fundust við húsleitir í Kópavogi um síðustu helgi. Um var að ræða talsvert magn af kókaíni, amfetamíni og marijúana en fíkniefnin fundust á tveimur stöðum í bænum. Á öðrum staðnum var jafnframt lagt hald á stera. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.