8 Janúar 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í Norðlingaholti í gærkvöld. Um var að ræða amfetamín, hass og marijúana. Karl og kona voru handtekin í þágu rannsóknar málsins. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði. Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar fíkniefnaleitarhunds frá tollgæslunni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.