2 Júlí 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í Vogahverfi í Reykjavík í morgun. Um var að ræða 40 grömm af marijúana, amfetamín í neysluskömmtum og 30 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á fertugsaldri,  var handtekinn en í fórum hans fannst einnig afsöguð haglabyssa. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði.