8 Mars 2010 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í austurborginni á föstudag. Um var að ræða um 300 grömm af amfetamíni og ámóta magn af marijúana, auk kannabisplantna. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn og játaði hann aðild sína að málinu. Sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.