21 Janúar 2011 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Um var að ræða amfetamín en talið er að það hafi verið ætlað til sölu. Húsráðandi, kona á fertugsaldri, var handtekin í þágu rannsóknarinnar. Karl um þrítugt var handtekinn skömmu áður en húsleitin hófst en sá var að koma úr áðurnefndri íbúð. Í fórum hans fannst einnig amfetamín.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.