21 Mars 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í Hafnarfirði á föstudagskvöld. Um var að ræða bæði hass og marijúana. Karl á fertugsaldri og kona um þrítugt voru handtekin í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.