4 Apríl 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni við húsleit í íbúð í Breiðholti á föstudag. Um var að ræða bæði amfetamín og marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Tveir karlar og ein kona voru handtekin í þágu rannsóknarinnar en fólkið er allt á þrítugsaldri.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.