14 Desember 2007 12:00

Karl og tvær konur, sem öll eru á miðjum aldri, voru handtekin í húsleit í íbúð í miðborginni í gærkvöld en þar fundust ætluð fíkniefni. Um var að ræða 200 grömm af hassi og lítilræði af amfetamíni. Tveir fíkniefnaleitarhundar voru notaðir við leitina.

Um svipað leyti voru höfð afskipti af þremur piltum, 17-19 ára, sem allir eru grunaðir um fíkniefnamisferli. Til þeirra náðist á hafnarsvæði borgarinnar en þeir voru með ætluð fíkniefni í fórum sínum. Og í nótt var karl á þrítugsaldri handtekinn í Bankastræti. Í bíl hans fundust ætluð fíkniefni og riffill.