29 Júlí 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Breiðholti eftir hádegi í gær. Um var að ræða um 300 grömm af amfetamíni, eitthvað af e-töflum og talsvert af öðrum efnum sem á eftir að greina. Á sama stað var einnig lagt hald á talsvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu sem og ýmsa muni sem tengjast fyrrnefndri starfsemi. Karl á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Hann hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Ætla má að fíkniefnin hafi átt að selja um verslunarmannahelgina.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.