16 Október 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í Breiðholti um kvöldmatarleytið í gær en um amfetamín var að ræða. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Maðurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.