14 September 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarholti síðdegis á föstudag. Um var að ræða um 100 grömm af kannabis. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir og yfirheyrðir í tengslum við rannsókn málsins. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.