29 Júlí 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Grafarvogi síðdegis í gær. Um var að ræða vel á annað hundrað grömm af amfetamíni og um 50 grömm af hassi. Innandyra voru þrír karlar á þrítugsaldri og voru þeir allir yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Ætla má að fíkniefnin hafi átt að selja um verslunarmannahelgina.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.