24 Nóvember 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Hafnarfirði um kvöldmatarleytið í gær. Um var að ræða um 700 grömm af marijúana og 20 kannabisplöntur. Af ummerkjum mátti ráða að nýbúið var að klippa ræktunina niður en megnið af fíkniefnunum voru í þurrkun.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.