18 Mars 2010 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi í Hafnarfirði í gærkvöld. Um var að ræða um 130 grömm af amfetamíni, á annan tug kannabisplantna og lítilræði af marijúana. Á sama stað var einnig lagt hald á allnokkuð af sterum. Húsráðandi, karl um þrítugt, var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en sá hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.