6 Maí 2010 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í Kópavogi í gærkvöld. Um var að ræða rúmlega 200 grömm af marijúana og hassi. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsa muni sem grunur leikur á að séu þýfi. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.