17 September 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Kópavogi síðdegis í gær. Um var að ræða kannabis og kannabisfræ. Innandyra voru tveir karlar og tvær konur en fólkið hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.