14 Október 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í miðborginni í gærkvöld. Um var að ræða 80 grömm af marijúana og var það ætlað til sölu. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknarinnar.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.