19 Júlí 2007 12:00

Ætluð fíkniefni fundust við húsleitir í tveimur íbúðum í úthverfum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Karl og kona, sem bæði eru á þrítugsaldri, voru handtekin í þágu rannsóknar málanna. Hún hefur áður komið við sögu hjá lögreglu en hann mjög lítilsháttar. Húsleitirnar voru framkvæmdar að undangengnum úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.