13 September 2008 12:00

Fíkniefni fundust við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu á fimmtudagskvöld. Í húsi í vesturbæ Reykjavíkur var lagt hald á bæði amfetamín og marijúana, samtals rúmlega 70 grömm. Þrír karlar á þrítugsaldri voru handteknir í þágu rannsóknar málsins en tveir þeirra hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Efnin voru ætluð til sölu. Í íbúð í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan kannabisræktun og lagði hald á 10 kannabisplöntur. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

1.