22 Desember 2006 12:00

Lögreglan í Hafnarfirði, með aðstoð lögreglunnar í Kópavogi og Reykjavík, lagði hald á rúmlega 200 grömm af hassi við húsleit í Hafnarfirði í gærkvöldi.  Karl og kona, bæði á þrítugsaldri, voru handtekin vegna rannsóknar málsins en sleppt af loknum yfirheyrslum. Leikur grunur á að efnin hafi verið ætluð til sölu.  Auk fíkniefnanna voru haldlagðir fjármunir sem taldir eru ágóði fíkniefnasölu.