11 Nóvember 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleit í íbúð í Reykjavík síðdegis í gær. Um var að ræða amfetamín, hass, marijúana, e-töflur og stera. Á sama stað var einnig lagt hald á töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í íbúðinni var einnig að finna loftskammbyssu, sveðju og hnífa og var það tekið í vörslu lögreglu. Fleiri munir, sem taldir eru vera þýfi, voru haldlagðir. Tveir karlar um þrítugt voru handteknir í tengslum við rannsókn málsins. Þeir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. Við aðgerðina, sem er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna, naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.