15 September 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á nokkra tugi gramma af því sem talið er vera amfetamín við húsleit í umdæminu í gærkvöld. Á sama stað var einnig að finna töluvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Húsráðandi, kona á þrítugsaldri sem tengist Outlaws, var handtekin í þágu rannsóknarinnar. Konan hefur áður komið við sögu hjá lögreglu vegna fíkniefnamála.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.