25 Júní 2009 12:00

Fíkniefni fundust við húsleitir á tveimur stöðum á höfuðborgarsvæðinu í gær. Um var að ræða kókaín, amfetamín og hass. Á báðum stöðum var einnig lagt hald á talsvert af peningum sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Í báðum tilfellum voru húsráðendur handteknir. Annar þeirra var einnig með þýfi í fórum sínum en hinn reyndist jafnframt vera eftirlýstur fyrir aðrar sakir. Mennirnir eru á þrítugs- og fertugsaldri og hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.