30 Júní 2009 12:00

Karl á sextugsaldri, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á innflutningi fíkniefna og peningaþvætti, er laus úr haldi. Tveir aðrir karlar, annar á þrítugsaldri en hinn á fimmtugsaldri, hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að sama máli. Sá eldri hefur nú hafið afplánun vegna annarra mála en gæsluvarðhaldsúrskurður yfir þeim yngri rennur út á morgun.