24 Febrúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fann fíkniefni og þýfi við húsleit á Álftanesi í gær. Um var að ræða m.a. kókaín og marijúana en þýfið er úr nokkrum innbrotum. Á sama stað var einnig lagt hald á skotvopn. Húsráðendur, karl og kona um þrítugt, voru handtekin í þágu rannsóknarinnar. Við húsleitina naut lögreglan aðstoðar fíkniefnaleitarhunda frá tollinum.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.