10 Nóvember 2008 12:00

Fimm fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir helgina. Við sögu komu jafnmargir karlar en þeir voru allir teknir í Reykjavík, þrír í miðborginni og einn í Hlíðunum og Árbæ. Í fórum þeirra fannst ýmist hass, amfetamín eða marijúana. Tveir mannanna eru á þrítugsaldri, tveir á fimmtugsaldri og einn um tvítugt.