16 Janúar 2012 12:00

Um helgina voru fimm ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld og einn sömuleiðis á bæði laugardag og sunnudag og loks tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 18-37 ára og ein kona, 21 árs. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en einn þeirra var jafnframt á stolnum bíl.