25 Janúar 2011 12:00

Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Kópavogi og tveir í Reykjavík. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, tveir á laugardag og tveir sömuleiðis á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-28 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.