21 Febrúar 2011 12:00

Um helgina voru fimm ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tveir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru þrír karlar á aldrinum 24-33 ára og tvær konur, 27 og 33 ára en sú eldri hafði þegar verið svipt ökuleyfi.