23 Ágúst 2011 12:00

Um helgina voru fimm ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 20-28 ára og ein kona, 29 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.