22 Febrúar 2012 12:00

Fimm ökumenn voru sviptir ökuréttindum til bráðabirgða í gær en þeir voru allir staðnir að hraðakstri á Suðurgötu við Skothúsveg í Reykjavík. Bílar fimmmenninganna mældust á 64-74 km hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Ökumennirnir, fjórir karlar og ein kona, eru á aldrinum 17-62 ára.