21 Mars 2011 12:00

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Einn var tekinn á föstudagskvöld, tveir aðfaranótt laugardags, einn aðfaranótt sunnudags og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru þrír karlar á þrítugsaldri og tvær konur um tvítugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.