15 Mars 2011 12:00

Fimm ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík í gær en þeir voru stöðvaðir víðsvegar í borginni. Þetta voru þrír karlar, einn 17 ára og tveir á fimmtugsaldri, og tvær konur, 44 og 62 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.