5 Október 2009 12:00

Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tveir voru stöðvaðir á föstudagskvöld, fjórir á laugardag, átta á sunnudag og einn í nótt. Tólf voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 16-40 ára og tvær konur, 40 og 50 ára. Sex þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi enda aðeins 16 ára.