7 Desember 2010 12:00

Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík, þrír í Kópavogi og einn í Garðabæ. Þrír voru teknir á föstudagskvöld, átta á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru fjórtán karlar á aldrinum 17-60 ára og ein kona, 26 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.