26 Apríl 2011 12:00

Fimmtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um páskana. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á skírdag, tveir á föstudaginn langa, fjórir á laugardag, einn á páskadag og fjórir á annan í páskum. Þetta voru þrettán karlar á aldrinum 18-66 ára og tvær konur, 29 og 39 ára. Þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.