15 Apríl 2020 17:04

Lögreglan hefur fengið nokkuð af tilkynningum á síðustu dögum þar sem fólk hefur verið að fá ógnandi og grófa pósta þar sem reynt er að kúga fé af fólki. Sendandinn þykist hafa komist í tölvu viðtakanda og hafi yfirtekið tölvuna og náð myndefni af brotaþola þar sem hann/hún sé að skoða klámsíður. Ef greiðsla berist ekki innan tiltekins tíma og með bitcoin eða annari rafmynt þá verði þessu myndefni af brotaþola dreift og þaðan af verra.
Það sem gerir þetta sérlega ógnandi er að oft segjast þrjótarnir hafa leyniorð viðkomandi og sína lykilorð sem viðkomandi hefur notað. Við viljum hvetja fólk til að halda ró sinni. Það hefur enginn tekið yfir tölvu ykkar og hótunin er innantóm.

Lykilorðið hafa svindlararnir líklega fengið af því þeir hafa komist inn á vefsíðu sem viðkomandi hefur einhvern tíma skráð sig á og þar fá þeir lykilorð-netfang-notandanafn. Þessar upplýsingar eru síðan nýttar í slíkum pósti til að skapa hræðslu og óhug í þeirri von svindlaranna að fólk bregðist hrætt við og sendi peninga. Það getur verið mjög óþægilegt að fá slíkan póst og valdið uppnámi hjá fólki, enda er pósturinn sniðinn að því að hafa þau hughrif.

Góðar venjur

• Ef þú færð slíkan póst ekki senda peninga. Í raun er best að senda aldrei svindlurum peninga því þeir eru aðeins líklegir til að reyna að þvinga þig til að borga meira.
• Ef þetta er lykilorð sem þú notar mikið og á viðkvæmum stöðum þá er þér ráðlagt að breyta því. Lögreglan mælir eindregið með fólk noti aðskild lykilorð á viðkvæmum stöðum, eins og aðgangi að netfangi, samfélagsmiðlum og greiðsluþjónustum, heldur en það notar almennt á öðrum síðum. Það má koma sér upp einhverju kerfi eins og lykilorðabanka (password manager).
• Fólki er líka bent á að síðan https://haveibeenpwned.com/ birtir upplýsingar um gagnaleka þar sem fólk getur skoðað hvort að eitthvað tengist netfangi þeirra.
Ef þið fáið tölvupóst með netsvindli þá megið þið endilega senda hann á cybercrime@lrh.is en það gefur lögreglu færi á að fylgjast með því sem er í gangi og bregðast við því fljótt og vel.