10 Nóvember 2020 14:44

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar umfangsmikið mál sem snýr að meintum fjársvikum og peningafölsun. Sjö, erlendir ríkisborgarar voru handteknir vegna þessa í umdæminu í síðustu viku og færðir til yfirheyrslu, en talið er að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Nokkrir til viðbótar hafa verið yfirheyrðir í tengslum við málið, auk þess sem lögreglan hefur ráðist í tvær húsleitir í þágu rannsóknarinnar. Grunur er um að hópurinn hafi framvísað fölsuðum peningaseðlum í allmörg skipti og einnig svikið út peninga með því að komast yfir greiðslukort og PIN-númer hjá viðskiptavinum öldurhúsa. Lögreglan hvetur því fólk til að gæta að sér þegar PIN-númer eru slegin inn og eins að upplýsingar um PIN-númer séu ekki geymdar með greiðslukortum. Og sömuleiðis að starfsfólk við afgreiðslukassa sé á varðbergi vegna falsaðra peningaseðla.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um skipulagða brotastarfsemi, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.