11 Ágúst 2022 16:40
 Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á fjársvikum sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir í síðasta mánuði miðar vel, en talið er að hópur brotamanna hafi verið þar að verki. Framkvæmdar hafa verið bæði handtökur og húsleitir í þágu rannsóknarinnar, en lögregla ætlar að um skipulagða brotastarfsemi sé að ræða. Sakborningar virðast hafa komið til landsins í þeim eina tilgangi að svíkja fé út úr fólki og virðast hafa sérhæfingu í netfjársvikum og peningaþvætti. Einn sat í gæsluvarðhaldi í tæplega hálfan mánuði vegna rannsóknarhagsmuna en viðkomandi er nú laus úr haldi lögreglu.

Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að settar voru upp svokallaðar skuggasíður í nafni Landsbankans, sem grunlausir viðskiptavinir fóru inn á í gegnum leitarvélar (Google, Firefox, Safari), og á meðan viðskiptavinirnir töldu sig vera að tengjast heimabanka sínum voru fjármunirnir millifærðir af reikningi þeirra í rauntíma. Það var eingöngu ef fólk notaði leitarvélar sem þetta gerðist, þeir sem skráðu sig beint á rétta slóð urðu ekki fyrir þessari árás. Í ljósi þessa er mjög mikilvægt að fólk hafi ávallt hugfast að  tengjast heimabönkum beint en ekki í gegnum leitarvélar og skoði slóðina sem viðkomandi fer á. Ef eitthvað virkar einnkennilega að skoða allt gaumgæfilega. Einnig að kynna sér netöryggismál og varnir gegn netsvikum, en þau hafa færst mjög í vöxt undanfarin ár.

Lögreglan er í nánu samstarfi við banka og CERT-Is til að fyrirbyggja að þetta form netsvindls endurtaki sig.