19 Maí 2022 17:24

Karlmaður á fimmtugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald, eða til 16. júní, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn á íþróttasvæði í austurborginni síðdegis í gær eftir að tilkynning barst um mann sem þar væri að bera sig fyrir framan börn. Viðkomandi hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu vegna blygðunarsemisbrota gagnvart börnum og fullorðnum á sama svæði síðustu vikur og mánuði.

Maðurinn unir úrskurðinum.