30 Apríl 2024 13:09

Karlmaður á fimmtugsaldri var í gær í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna síbrotagæslu, eða til 27. maí, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn, sem hefur ítrekað komið við sögu hjá lögreglu, var handtekinn í austurborginni á sunnudagskvöld eftir að bifreið hans var veitt eftirför. Þar ók maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, um Langholtshverfið og víðar og skeytti lítt um aðra vegfarendur, en mildi þykir að enginn slasaðist. Bifreið mannsins var ekið mjög ógætilega, m.a. yfir leyfðan hámarkshraða, gegn rauðu ljósi, gegn einstefnu og bæði á gangstétt og göngustíg svo eitthvað sé nefnt.