30 Janúar 2017 18:57

Stefnt er að fjölgun öryggismyndavéla í miðborg Reykjavíkur, bættri lýsingu á svæðinu, auknum sýnileika lögreglu og áframhaldandi samstarfi við eigendur skemmtistaða um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði. Þetta eru helstu niðurstöður fundar sem lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, og borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, áttu í Ráðhúsinu í dag.

Lögreglan og borgaryfirvöld hafa átt gott samstarf þegar öryggi borgaranna er annars vegar og svo verður áfram. Þá er skemmst að minnast samkomulags um ofbeldislausa og örugga skemmtistaði, sem skrifað var undir í lok síðasta árs. Að því standa lögreglan, borgaryfirvöld, slökkviliðið og Samtök ferðaþjónustu (SAF) fyrir hönd skemmtistaða í Reykjavík. Samkomulagið miðar að því að auka öryggi á og við skemmtistaði með auknu samstarf milli þessara aðila með sameiginlega hagsmuni að leiðarljósi.