25 Ágúst 2013 12:00

Þúsundir manna voru á menningarnótt Reykjavíkur í miðborginni í gær og nótt, en talið er að gestir hafa verið um 80 þúsund þegar mest var. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað og að venju hafði hún í nógu að snúast en útköllum fjölgaði eftir því sem á leið. Starfsmenn umferðardeildar höfðu t.d. í mörg horn að líta en tólf umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar. Að venju var talsvert um að ökutækjum væri illa og/eða ólöglega lagt í og við miðborgina og sumir ökumenn áttu líka erfitt með að virða lokanir gatna. Að öllu samanlögðu verður þó ekki annað sagt en að umferðin hafi gengið bara bærilega á menningarnótt, ekki síst þegar kom að því að greiða fyrir umferð úr miðborginni að lokinni flugeldasýningu. Að venju voru höfð afskipti af fólki vegna ölvunar og fíkniefnaneyslu, en áfengi var tekið unglingum og því hellt niður. Sá yngsti í þeim hópi er 13 ára. Er leið á nóttina fóru að berast kvartanir vegna hávaða í heimahúsum, en slíkt er viðbúið um helgar og var ekki meira en við mátti búast.

Eins og venjulega naut lögreglan aðstoðar ýmissa aðila á menningarnótt, m.a. björgunarsveitarmanna. Samstarfið gekk mjög vel og eru hlutaðeigandi aðilum færðar kærar þakkir fyrir aðstoðina. Á heildina litið lítur lögreglan svo á að menningarnótt hafi farið ágætlega fram. Líkt og áður notaði lögreglan fésbókarsíðu embættisins til að miðla ýmsum upplýsingum á menningarnótt, sérstaklega þó eru sneru að umferðarmálum, og var því vel tekið.