5 Ágúst 2022 22:48

Fjórir aðilar voru í kvöld í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 17. ágúst í þágu rannsóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum. Fjórmenningarnir voru handteknir í sameiginlegun aðgerðum lögreglu í gær en að þeim komu embætti lögregluliðanna á  höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.