3 Október 2011 12:00

Um helgina voru fjórir ökumenn teknir í Reykjavík fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru tveir karlar, 21 og 24 ára, og tvær konur, 22 og 32 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi en annar þeirra var á stolnum bíl.