25 Janúar 2010 12:00

Um helgina voru fjórir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 17-28 ára. Þrír voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Garðabæ. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.