8 Mars 2011 12:00

Um helgina voru fjórir ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Þrír voru teknir aðfaranótt laugardags og einn aðfaranótt sunnudags. Þetta voru þrír karlar á aldrinum 17-27 ára og ein kona, 23 ára. Í för með yngsta ökumanninum voru tveir jafnaldrar hans en annar þeirra var með fíkniefni í fórum sínum. Þeir voru líka færðir á lögreglustöð en þaðan var hringt í foreldrana sem komu síðan og sóttu þá.